Um Hressingu

Hressing
Hressing er fyrirtækjaþjónusta Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar sem sérhæfir sig í heildarlausnum í drykkjarvöru og snarli fyrir vinnustaði landsins. Hressing býður upp á fjölbreytt vöruúrval og því þarf viðskiptavinurinn ekki að leita annað til að sjá starfsfólki og gestum fyrir hressingu á annasömum degi.

Hressing býður upp á fjölbreytt úrval af heitum og köldum drykkjum ásamt bragðgóðu snarli, sér viðskiptavinum sínum fyrir vönduðum tækjabúnaði s.s. kaffivélum, kælum og sjálfsölum sem ýmist er leigður eða lánaður til viðskiptavinar. Auk þessa býður Hressing upp á einnota vörur og hreinlætisvörur.
Söludeild er opin:
Mánudaga – fimmtudaga frá kl. 8:00 til 17:00
Föstudagur frá 08:00 til 16:00
Sími: 412-8100

Farsímar og netföng sölufulltrúa Hressingar
Nafn                                     Farsími       Netfang
Bergrún Brá Kormáksdóttir  665-8084   bergrunbra@olgerdin.is
Haukur Ægir Ragnarsson    665-8082   haukur@olgerdin.is
Valdís María Einarsdóttir      665-8083   valdis@olgerdin.is
Valur Ásberg Valsson;     665-8081   valur@olgerdin.is

Afgreiðslufrestur
Það er stefna Hressingar að pöntunin sé tilbúin næsta virka dag fyrir kl. 16. 

Þjónustuver
Hressing notast við þjónustuver Ölgerðarinnar. Hægt er að hringja þangað og panta allar þær vörur sem finna má á hér á þessu vefsvæði.
Þjónustuver Ölgerðarinnar er opið alla virka daga milli kl. 08:00-17:00, nema á föstudögum en þá lokar kl. 16:00. Símanúmer þjónustuversins er 412-8100. 

Símar og netföng starfsmanna þjónustuvers

Nafn                                   Sími               Netfang
Anna Ottadóttir                   412-8011     anna.ottadottir@olgerdin.is
Eyrún Þórðardóttir              412-8291     eyrun.thordardottir@olgerdin.is
Guðný Gestsdóttir              412-8062     gudny.gestsdottir@olgerdin.is
Harpa Hrönn Guðmundsdóttir         412-8332    harpa.hronn.gudmundsdottir@olgerdin.is
Jónína Guðrún Færseth     412-8046     jonina.gudrun.faerseth@olgerdin.is
Klara Guðmundsdóttir         412-8184    klara.gudmundsdottir@olgerdin.is
Perla Ingólfsdóttir     412-8330     perla.ingolfsdottir@olgerdin.is
Salbjörg Jónsdóttir              412-8216    salbjorg.jonsdottir@olgerdin.is
Sæunn H. Guðmundsdottir  412-8238    saeunn.heidrun.gudmundsdottir@olgerdin.is

Þjónustudeild
Þjónustudeild Ölgerðarinnar sér um viðhald og viðgerðir á kæliskápum og öðrum vélbúnaði þeim er fæst hjá Hressingu. Þjónustudeildin er opin á sama tíma og þjónustuverið en síminn hjá þjónustudeildinni er 412-8400.

Þjónustudeild er opin (Viðgerðarþjónusta tækja)

Alla virka daga frá 8:00 til 12:00 og 13:00-17:00
Beint símanúmer þjónustudeildar er 412-8400

Farsímar og netföng þjónustufulltrúa
Nafn     Farsími  Netfang
Einar Gunnarsson  665-8278 einar.gunnarsson@olgerdin.is
Jónas Þór Þórisson   665-8173 jonas.thor.thorisson@olgerdin.is
S. Árni Ingimarsson    665-8279 s.arni.ingimarsson@olgerdin.is

Hvernig pantar þú
Í gegnum vefverslun okkar www.hressing.is. Á vefsíðunni getur þú pantað allar þær vörur sem eru í vörulista okkar.
Í gegnum þjónustuver okkar í síma 412-8100.
Í gegnum þjónustukerfi okkar. En þá fær viðskiptavinur annaðhvort reglulega heimsókn frá sölumanni eða hringingu frá þjónustuveri.

Í vörulistanum má finna allar helstu vörur sem Hressing býður upp á. Starfsmenn Hressingar vinna stöðugt að því að bæta þjónustu og vöruval til viðskiptavina þannig að að vörulistinn verður aldrei tæmandi. Á www.hressing.is er vörulisti okkar alltaf uppfærður reglulega svo þar er hægt að nálgast nýjustu útgáfu af vörulistanum. 

Um Ölgerðina
Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði. Ölgerðin framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Aðeins vörur sem eiga þess kost að vera fremstar í sínum flokki eru settar á markað og hverjum birgja sinnt sem hann væri sá eini. Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, neytendur, starfsfólk og eigendur.

Ölgerðin skiptist í fjögur tekjusvið, sem hvert hefur sitt afmarkaða og ákveðna hlutverk:

Danól: Sviðið sér um að selja sælgæti, mat- og sérvöru í stórmarkaði, sérvöruverslanir og fríhafnir.
Egils: Sviðið sér um að selja áfenga og óáfenga drykki.
Hressing: Sviðið selur drykki og matvöru til fyrirtækja og stofnanna.
Gnótt: Sviðið selur umbúðir og hráefni til stóreldhúsa, bakaría, kjötvinnsla o.fl.  


Pöntun

Samtals
0 kr.