Uppskriftir

Uppskriftir

Með mjólkurfroðunni úr Lattemento má búa til alla þá kaffidrykki sem hugurinn girnist, kalda sem heita. Hér er að finna nokkrar uppskriftir til að koma þér af stað.

Cappuccino
Dæmigerður ítalskur kaffibolli: 1/3 espresso, 1/3 heit mjólk og svo 1/3 mjólkurfroða efst. Að auki velja sumir að strá kakódufti ofan á froðuna.

Caffè latte
Góður bolli af caffè latte byggir á espresso. Helltu heitri mjólk ofan á kaffið og settu örlítið af mjólkurfroðu á toppinn. Caffè latte er borinn fram í háu glasi.

Macchiato
Bókstafleg þýðing macchiato er „blettóttur espresso“. Það er espresso með litlum dropa af mjólkurfroðu. Við fyrstu sýn virðist þetta vera lítil útgáfa af cappucino en í raun er bragðið sterkara því hlutfall mjólkur er mun minna. Notaðu skeið til að setja mjólkurfroðuna (og aðeins af heitri mjólk) í bollann og bættu svo espresso út í.

Latte macchiato
Vel útbúinn latte macchiato er lagskiptur. Ólíkt cappuccino og caffè latte þá er mjólkin og mjólkurfroðan sett fyrst í glasið. Fylltu glasið nær alveg upp að börmum og bíddu því næst eftir því að mjólkurfroðan falli eilítið. Þá máttu hægt og rólega hella espresso í glasið með hringlaga hreyfingu. Þegar þetta er gert nógu varlega verður til falleg lagskipting. Ef þú vilt bæta við bragðtegund eða áfengi skaltu setja það út í mjólkina áður en þú setur mjólkurfroðuna og espresso út í glasið.

Caffè mocha
Fyrir þennan drykk notar þú 1-2 skeiðar af súkkulaðisýrópi eða súkkulaðisósu. Börnin kunna vel að meta þennan súkkulaðikaffidrykk ef notað er aukalega örlítið af mjólk. Fyrst hellir þú sýrópinu i stóran bolla. Næst skaltu hella kaffi og heitri mjólk út í um leið og þú hrærir. Í lokin er svo nokkrum skeiðum af mjólkurfroðu og kakódufti bætt við.